31.05.2010
 Ómssonur

Í morgun kastaði hún Ófelía fjallmyndarlegum brúnum hesti undan engum öðrum en gæðingnum Ómi frá Kvistum. Liturinn kom frekar á óvart þar sem miklar getgátur voru um móálóttan lit enda líkurnar þar miklar genalega séð. Engu að síður lítur sá stutti vel út, standreistur og flottur. Við erum þá búin að fá fjögur folöld, tvo hesta og tvær hryssur en Eyrún er enn óköstuð og aldrei að vita nema maður fái nú móálótta skjótta hryssu...hmmm :o)

Nánar »  
 21.05.2010
 Ţriđja folaldiđ kom í dag
Það varð ekkert lítill spenningurinn þegar tengdapabbi hringdi í morgun og tilkynnti um nýtt folald á Breið..., við Patrik brunuðum að sjálfsögðu upp í sveit til að líta gripinn augum og urðum svo sannarlega ekki fyrir vonbrigðum. Aría Flygilsdóttirin var búin að kasta fífilbleikri hryssu undan Kappa frá Kommu.....
Nánar »  
 14.05.2010
 Fantasía köstuđ

Spenningurinn var ekkert lítill við að fara og taka út gripinn hennar Fantasíu þegar ég vissi að hún væri köstuð, kyn, litur og annað sem verður alltaf að taka út... :o) EN, ég varð nú ekki fyrir vonbrigðum frekar en hin skiptin en hún kastaði jörpum, tvístjörnóttum hesti, með leista á báðum afturfótum.

Nánar »  
 13.05.2010
 Fyrsta folaldiđ fćtt...
Við á Breiðstöðum erum ekkert lítið búin að bíða eftir fyrsta folaldinu og búin halda það dálítið lengi .... „að það sé aaaalveg að koma“, þar sem júgrið óx svo hratt. En í dag kastaði hún Zara sínu ellefta folaldi og að sjálfsögðu var það hryssa, en sú stutta er jörp á litin og vrikilega myndarleg. Til gamans má geta að hér er komin ALSYSTIR hennar Fantasíu sem gerði það gott á síðasta landsmóti, undan heiðursverðlaunahestinu Hróð frá Refsstöðum, og verður því spennandi að sjá hvort sú stutta slær systur sinni við, smá kröfur hérna megin... en er ekki alltaf gott að stefna eitthvað ??? :o)
Nánar »  

1  2  3  4  5  6  7  8  9  10  11  12  13  14  15  16  17  18  Næsta síđa 
• Björgvin 8985552 og Guđrún 8219262 • E-mail: breidstadir@internet.is
© 2008 Uppsetning og hönnun Hýsir.is