23.08.2010
 Hverjar fóru hvert?

Þá er drottningarnar farnar að týnast aftur heim frá stóðhestunum. Fantasíu sóttum við suður á dögunum, en hún fór undir hinn eina sanna Herjólf frá Ragnheiðarstöðum, sem er verðandi stórstjarna ef sögusagnirnar um hann standast....og varla ljúga þær. :o) Herjólfur er undan gæðingshryssunni Hendingu frá Úlfsstöðum og Gýgjari frá Auðsholtshjáleigu, svo kappinn ætti nú að geta sprikklað eitthvað og gefið þá vonandi af sér líka.Veðja á þennan !

Nánar »  
 17.08.2010
 Pan frá Breiđstöđum
Við eigum tveggja vetra fola undan þeim Hróð og Zöru sem heitir Pan, en hann er jú albróðir Fantasíu og ber það sterklega með sér. Við tókum og sónuðum frá honum um daginn en hann var með þrjár hryssur hjá sér og allar fengnar. Við bindum miklar vonir við þennan kappa en hann rúllar á þessu mjúka flotta tölti og grípur í skrefmikið og flott brokk svona spari, en við rákum hann til og smelltum nokkrum myndum, vona að þið hafið gaman af. Er einnig búin að setja fleiri upplýsingar um hann undir stóðhestum.
Nánar »  
 06.08.2010
 Gerist ţađ flottara?
Í dag fæddist okkur móálótt skjótt hryssa og þó ég segi sjálf frá og er aðdáandi númer eitt er hún gullfalleg og ekki skemmir það fyrir hversu spræk hún er á gangi. Eyrún virðist ætla að gefa okkur falleg hross en lítil reynsla er komin á hæfileika í reið, en mjög lofandi hross og rúm á gangi frá degi eitt. Sú stutta er undan Hruna frá Breiðumörk og því alsystir Bergs, sem er tveggja vetra stóðhestsefni hjá okkur. En ég læt að sjálfsögðu fylgja nokkrar myndir og dæmi nú hver fyrir sig... :o)
Nánar »  
 31.05.2010
 Ómssonur

Í morgun kastaði hún Ófelía fjallmyndarlegum brúnum hesti undan engum öðrum en gæðingnum Ómi frá Kvistum. Liturinn kom frekar á óvart þar sem miklar getgátur voru um móálóttan lit enda líkurnar þar miklar genalega séð. Engu að síður lítur sá stutti vel út, standreistur og flottur. Við erum þá búin að fá fjögur folöld, tvo hesta og tvær hryssur en Eyrún er enn óköstuð og aldrei að vita nema maður fái nú móálótta skjótta hryssu...hmmm :o)

Nánar »  

1  2  3  4  5  6  7  8  9  10  11  12  13  14  15  16  17  18  19  Næsta síđa 
• Björgvin 8985552 og Guđrún 8219262 • E-mail: breidstadir@internet.is
© 2008 Uppsetning og hönnun Hýsir.is