Þá er drottningarnar farnar að týnast aftur heim frá stóðhestunum. Fantasíu sóttum við suður á dögunum, en hún fór undir hinn eina sanna Herjólf frá Ragnheiðarstöðum, sem er verðandi stórstjarna ef sögusagnirnar um hann standast....og varla ljúga þær. :o) Herjólfur er undan gæðingshryssunni Hendingu frá Úlfsstöðum og Gýgjari frá Auðsholtshjáleigu, svo kappinn ætti nú að geta sprikklað eitthvað og gefið þá vonandi af sér líka.Veðja á þennan ! |
Zara gamla sem núna er orðin 22 vetra og slær þeim yngri ekkert við, fór undir bróðir Kappa frá Kommu, hann Kapal frá Kommu sem er undan Álfi frá Selfossi. Kapall er einungis 2 vetra gamall en lofandi hestur, mikið skjóttur, stór og myndarlegur miðað við aldur. Yrði nú ekki leiðinlegt að fá eitt jarpskjótt undan þeirri gömlu... ;o) blikk blikk
Eyrún fór svo undir Pan okkar frá Breiðstöðum, en sú blanda ætti að koma vel út held ég þar sem veturgamla Hróðsdóttirin undan henni, hún Díva er virkilega spennandi og í góðu lagi að framleiða fleiri svoleiðis hross.
Aría fór líka undir Pan, en það verður spennandi að sjá hvaða litaflóru við fáum þar....margt í boði. En til gamans má geta að með þessari blöndu er ég búin að blanda mínum aðalræktunarhryssum í eina blöndu, Zöru og Gloríu. Pan er undan Zöru og Aría er undan Gloríu....spennandi !
Svo er það hún Ófelía sem er enn ókomin en hún fór undir hann Blysfara frá Fremri Hálsi, en hann er undan Orrasyninum Arði frá Brautarholti. Sá þennan hest á Vinheimamelum í sumar og heillaðist alveg strax, ekki skemmdi svo fyrir að eigandinn ákvað að bjóða 1. verðlaunahryssum dráttinn frían sem mér finnst frábært framtak og lét það að sjálfsögðu ekki fram hjá mér fara og brunaði með skvísuna undir hann. Búið að sóna einu sinni frá honum og var hún ekki í því holli svo nú er bara að krossa fingur... :o)
En ég tók saman myndir af þessum köppum sem við héldum undir og leyfi þeim að fylgja til gamans.

Fantasía fór undir ..... ....Herjólf frá Ragnheiðarstöðum

Zara fór undir... ....Kapal frá Kommu
.jpg)
Eyrún fór undir... ...Pan frá Breiðstöðum
.jpg)
Aría fór undir.. ..... Pan frá Breiðstöðum

Ófelía fór undir ... ...Blysfara frá Fremri Hálsi
|