Í dag fæddist okkur móálótt skjótt hryssa og þó ég segi sjálf frá og er aðdáandi númer eitt er hún gullfalleg og ekki skemmir það fyrir hversu spræk hún er á gangi. Eyrún virðist ætla að gefa okkur falleg hross en lítil reynsla er komin á hæfileika í reið, en mjög lofandi hross og rúm á gangi frá degi eitt. Sú stutta er undan Hruna frá Breiðumörk og því alsystir Bergs, sem er tveggja vetra stóðhestsefni hjá okkur. En ég læt að sjálfsögðu fylgja nokkrar myndir og dæmi nú hver fyrir sig... :o)