31.05.2010
 Ómssonur

Í morgun kastaði hún Ófelía fjallmyndarlegum brúnum hesti undan engum öðrum en gæðingnum Ómi frá Kvistum. Liturinn kom frekar á óvart þar sem miklar getgátur voru um móálóttan lit enda líkurnar þar miklar genalega séð. Engu að síður lítur sá stutti vel út, standreistur og flottur. Við erum þá búin að fá fjögur folöld, tvo hesta og tvær hryssur en Eyrún er enn óköstuð og aldrei að vita nema maður fái nú móálótta skjótta hryssu...hmmm :o)

En ég tók þrjár myndir af þessum flottu mæðginum og læt þær fylgja.




 




• Björgvin 8985552 og Guđrún 8219262 • E-mail: breidstadir@internet.is
© 2008 Uppsetning og hönnun Hýsir.is