Litli prinsinn okkar dafnar vel og það á alla kanta, enda finnst honum sopinn góður. :o) En þessi litli gullmoli varð þriggja mánaða í dag og lét hann sko mömmu sína vita vel af því enda farinn að tjá sig mikið og SKÝR tjáskipti hjá honum um það hvort honum líkar eitthvað vel eða illa !!! :o)
Við skvísurnar fórum á hundasýningu um helgina, sem haldin var í Víðidalnum. Fjölskyldan brunaði suður með öllu tilheyrandi og að sjálfsögðu við það að vera ófært eins og alltaf þegar við bregðum af bæ, nema að við gistum á luxus mótelinu a la Rósa og Bjarni á Selfossi. Prinsarnir voru bara á gistiheimilinu í góðu yfirlæti á meðan við skvísurnar fórum og kepptum, en Hjördís María kom með mér sem dyggur aðstoðarmaður og stóð sig eins og hetja.
Það fjölgaði í litlu fjölskyldunni okkar annan í jólum en þá fæddist okkur lítill prins, hann lét aðeins hafa fyrir sér þessi elska en eftir 24 klukkustunda baráttu enduðum við í keisara. Pabbinn var að vonum mjög ánægður með fjölgun karlpeningsins í fjölskyldunni, enda erum við fjórar prinsessurnar svo hlutföllin hafa aðeins jafnast út.
Við brunuðum á Hóla í dag til að taka út hana Díönu Svein-Hervarsdóttur hjá Sóloni. En eins og fram hefur komið hefur hann verið með hryssuna fyrir okkur síðan í haust með hléi. Ég segi það og stend við það að það er aðdáunarvert að fylgjast með því hvernig hryssan hefur mótast í höndunum á honum, þvílíkur snillingur og fagmaður hér á ferð.