|
|
|
|
 |
 |
 |
27.02.2010 |
| Búiđ ađ ráđa tamningarkonu |
Við tókum okkur til og réðum eitt stykki tamningakonu, en það er engin önnur en Ástríður Magnúsdóttir og oftast kölluð Ásta. Ásta er ungur og efnilegur knapi sem hefur getið sér mjög gott orð, er margreynd í keppni og þjálfun hrossa miða við aldur enda búin að vera heimalingur Vatnsleysubúsins síðustu ár. Ég fór í hesthúsið í dag og tók myndir af Ástu við tamningarnar, en hún er með þrjú trippi fyrir okkur. |
 |
| Nánar » |
|
 |
 |
21.02.2010 |
| Frábćr árangur hjá Míu Björgvins |
Við Mía fórum á hundasýningu í október en skvísan gerði sér lítið fyrir og endaði í þriðja sæti í tegundahóp 2, fékk frábæran dóm og bæði íslenskt og alþjóðlegt stig. Enginn smá árangur hjá skvísunni og vantar henni nú bara eitt íslenskt stig til að verða íslenskur meistari. En við ætlum að leggja land undir fót og mæta á sýnininguna sem fram fer um næstu helgi, 27.-28. febrúar. Litla systir Míu hún Lady er einnig skráð á sína fyrstu sýningu en það verður spennandi að sjá hvernig skvísurnar munu standa sig. Leyfi ykkur að fylgjast með. Goody :o) |
 |
| Nánar » |
|
 |
 |
21.12.2009 |
| Díana í tamningu |
Díana frá Breiðstöðum var send í tamningu í haust en hún er undan Zöru og Sveini Hervari frá Þúfu, og er því hálfsystir Fantasíu. Hryssan slasaði sig frekar illa á framfæti þriggja vetra gömul og því búið að vera tvísýnt með framtíð hennar. En sárin hafa gróið vel og búið er að mynda löppina og virðist ekkert hafa skaddast, svo það var ekkert annað í stöðunni en að láta á hana reyna og fengum við frábæran tamningamann og mikinn fagmann í verkið, hann Sólon Morthens. |
 |
| Nánar » |
|
 |
 |
14.11.2009 |
| Hluthafafundur - Kapall |
Við fórum í dag á hluthafafund um Kapal frá Kommu. En hluthafar fengu að sjálfsögðu að taka hestinn út, en honum var bæði stillt upp og hann rekinn til. Hesturinn hefur stækkað mikið og lítur vel út, hann fer um bæði á brokki og tölti og er mjöööög lofandi. Vonandi verðum við svo lánsöm að koma undir hann hryssu næsta sumar. Spennandi... |
 |
| Nánar » |
|
|
 |
|
|