Hrossaræktin á Breiðstöðum er ung ræktun og byggist aðalega á þrem hryssum, þetta eru hryssurnar Zara frá Syðra Skörðugili, Gloría frá Mykjunesi og Prýði frá Vatnsleysu. Allar þessar hryssur koma hver úr sinni ræktuninni og frá sitt hvorum eigandanum og allar keyptar með nokkurra ára millibilum, en fyrir einskæra tilviljun er hægt að tengja allar þessar hryssur saman á tvo vegu, annarsvegar við hrossaræktarbúin Vatnsleysu og Syðra Skörðugil og hinsvegar við hornfirska stóðhestinn Nökkva 260 frá Hólmi.

      Zöru eignaðist Guðrún þegar hún var 10 ára gömul en þá fékk hún folald að gjöf frá Ragga afa sínum og foreldrum, en folaldið skýrði hún svo seinna í höfuðið á ömmu sinni, Söru frá Hesti. :o) Zara er frá Syðra Skörðugili, undan hestinum Merg frá Syðra Skörðugili og hryssunni Kolfinnu frá sama bæ, en Mergur er svo undan Söru frá Hesti sem að lokum er svo undan Nökkva frá Hólmi. Og móðir Zöru, Kolfinna er undan Svelg frá Vilmundarstöðum sem einnig er undan Nökkva frá Hólmi og er Zara því ættuð undan hornfirðingnum Nökkva í báða ættleggi. Gloría og Zara í Súđavík, haustiđ 1994.

      Þegar Guðrún var 16 ára hafði hún safnað sér fyrir öðrum hesti og hafði þá samband við Árna Jóhannsson tenór, sem hafði haft samskipti af sölunni á Zöru nokkrum árum áður. Hún óskaði þá eftir að kaupa efnilega hryssu og hafði Árni þá nokkrar hryssur til sölu, sem endaði á þann veginn að Guðrún flaug suður, skoðaði hryssurnar og keypti Gloríu frá Mykjunesi þá 5 vetra gamla og lítið gerða. Faðir Gloríu er Ófeigssonurinn Riddari frá Syðra Skörðugili, en móðir Riddara er  Nökkvadóttirin Kvika frá Hesti, líkt og amma Zöru, Sara frá Hesti.
      Gloría er svo undan hryssunni Höllu frá Vatnsleysu sem er alsystir Brynhildar frá sama bæ og gefið hefur marga góða gæðinga. Augljóslega má því mynda tengsl milli bæjanna Skörðugils og Vatnsleysu þegar ættleggir Gloríu eru skoðaðir. 


     

Zara og Prýđi sumariđ 2007     Þriðja hryssan er svo Prýði frá Vatnsleysu, en haustið 2004 vorum við hjúin í hestahugleiðingum, sem enduðu á þann veginn að við keyptum gæðingshryssuna Prýði af Vatnsleysubúinu. Prýði er undan fótaburðadýrinu Glampa frá Vatnsleysu og hryssunni Pandóru frá Syðra Skörðugili, og því strax komin tenging við báða fyrrnefnda bæi og að sjálfsögðu við fyrrnefndar hryssur, Zöru og Gloríu. Og það skemmtilegasta var svo þegar við uppgötvuðum að Nökkvi frá Hólmi er einnig í ættum Prýðar, því Pandóra móðir hennar er undan Nökkvadótturinni Söru frá Hesti líkt og faðir Zöru, Mergur frá Syðra Skörðugili.



  Nökkvi frá Hólmi

Nökkvi frá Hólmi      Nökkvi frá Hólmi var jarpstjörnóttur að lit og fæddur 1941. Í greinum um hestinn segir að Nökkvi hafi verið mikill höfðingi sem fóra víða um landið og skildi eftir sig einn mikilsverðasta slóðann í íslenskri hrossarækt, vakti hvarvetna aðdáun eða öfund og hlaut ýmist lof eða last. 
      Engu að síður er greinilegt að Nökkvablóðið má finna víða í íslenskri hrossarækt í dag og teljum við það mikinn kost að geta byggt okkar ræktun á slíkum forföður, því allar þessar hryssur hafa mikla kosti eins og sönnum ræktunarhryssum ber að hafa. Hægt er að fræðast betur um þenna ættföður HÉR.


      Markmið okkar í hrossarækt eru fyrst og fremst að reyna að rækta geðgóð, fasmikil og fjölhæf hross, fá en góð. Ræktunin byggist á þessum þremur umræddum hryssum Zöru, Gloríu og Prýði, en þær fyrrnefndu hafa svo sannarlega sannað gildi sitt sem gæðingamæður og höfum við nú bætt við tveimur hryssum undan þeim inn í ræktunina. Það eru hryssurnar Fantasía og Ófelía sem til gamans má geta hafa báðar Nökkvablóðið í æðum sér út frá móðurlegg. En við þessa flóru má svo bæta við hryssunni Eyrúnu frá Syðri Brekkum, en hún er undan Hjálmari Glampasyni og Toppu Hrafnsdóttur. Eyrún mun án efa setja sinn svip á ræktunina þrátt fyrir að vera ekki með Nökkvablóðið, en hryssan er flugrúm á öllum gangi og ekki skemmir fyrir þessi skemmtilegi litur sem hún ber.

       

• Björgvin 8985552 og Guđrún 8219262 • E-mail: breidstadir@internet.is
© 2008 Uppsetning og hönnun Hýsir.is