FOLÖLD 2008 - FLEIRI MYNDIR
|
IS2008157299 Eldon f. Breiðstöðum
Fyrsta folaldið okkar þetta árið og fyrsta folaldið hennar Prýði varð hestur, eins og svo oft áður var beðið eftir meri og í þetta skipti brúnskjóttri. :o) En engu að síður erum við mjööög sátt við folann, enda fjallmyndarlegur, standreistur og líka með þessa fallegu breiðu blesu. Hann ferðast nú aðalega um á stökki en þegar hann tekur til kostanna grípur hann í svifmikið brokk eða mjúkt tölt. Mjög efnilegt folald hér á ferð og álitlegt stóðhestsefni.
Ætt
|
F:
|
|
|
|
|
FF:
|
Orri frá Þúfu
|
FM:
|
Álfadís frá Selfossi
|
|
M:
|
|
|
|
|
MF:
|
Glampi frá Vatnsleysu
|
MM:
|
Pandóra frá S-Skörðugili
|
|
x
|
|
|
IS2008257299 Sena frá Breiðstöðum
Loksins fengum við hryssu undan henni Hyllingu. Hryssan hefur fengið nafnið Sena enda ótrúlega myndarleg, hún er brún á litin, háfætt, með hátt settan háls og skásetta bóga. Sena grípur í skrefmikið brokk á milli stökksprettanna, enda mjög hlaupaglöð.
Ætt
|
F:
|
|
|
|
|
FF:
|
Sveinn Hervar frá Þúfu
|
FM:
|
Framtíð f. Auðsholtshjáleigu
|
|
M:
|
Hylling frá Breiðstöðum
|
|
|
|
MF:
|
Gnýr frá Álftagerði
|
MM:
|
Drottning frá Breiðstöðum
|
|
x
|
|
|
IS2008157297 Berg frá Breiðstöðum
Mesta undrið þetta sumar er hann Berg. Eyrún kastaði þessum myndarlega hesti undan honum Hruna frá Breiðumörk. Hann er ekki bara fallegur, heldur bleikskjóttur, háfættur og ofsalega mjúkur og léttur í hreyfingum. Berg ferðast svo um á þessu þvílíka svifmikla, hágenga brokki og er hreint út sagt ,,yndi" að horfa á hann hreyfa sig. :o)
Hann var skírður Berg en nafnið þýðir bjargvættur, hjálp eða frelsun.
Ætt
|
F:
|
|
|
|
|
FF:
|
Hrannar f. Höskuldsstöðum
|
FM:
|
Hetta frá Breiðumörk II
|
|
M:
|
|
|
|
|
MF:
|
Toppa frá Syðri Brekkum
|
MM:
|
Hjálmari frá Vatnsleysu
|
|
x
|
|
|
IS2008157298 Pan frá Breiðstöðum
Zara sónaðist ekki með fyli við Hróðri og var það því mikil gleði þegar það uppgötvaðist að hryssan væri fylfull. Þá hófst biðin og eftirvæntingin og getspár um það hvort við fengjum Fantasíu II eða eitthvað allt annað, en þau eru jú alsystkyni. Zara kastaði svo þessum líka myndarlega hest 24. júlí og er hann rauðblesóttur og sokkóttur á VINSTRI hlið, þ.e.a.s. á fram og afturfæti vinstri hliðar.... frekar spes. Folinn er ofsalega myndarlegur, háfættur með grannan og vel settan háls en við teljum hann mjög gott efni í stóðhest. Hann hefur hlotið nafnið Pan, en orðið ,,pan" er notað yfir hlut sem sveiflast. :o)
Ætt
|
F:
|
|
|
|
|
FF:
|
Léttir frá Stóra Ási
|
FM:
|
Rán frá Refsstöðum
|
|
M:
|
|
|
|
|
MF:
|
Mergur frá Syðra Skörðugili
|
MM:
|
Kolfinna frá Syðra Skörðugili
|
|
x
|
|
|