IS2008165890 Kapall frá Kommu

Stóðhesturinn Kapall frá Kommu er orðinn hlutafélag sem inniheldur 60 hluti og 28 hluthafa. Tryggvi Björnsson ræktaði hestinn en Kapall er fæddur 2009, en hann er síðasta afkvæmi gæðingshryssunnar Kjarnorku frá Kommu sem slasaðist síðasta vor og þurfti að aflífa. Kappall var þá einungis fjögurra daga gamall og honum því úthlutuð fósturmóðir sem staðið hefur sig frábærlega.

Ættir Kapals eru stórar en hann er eins og áður sagði undan gæðingamóðurinni Kjarnorku, sem gefið hefur stóðhesta í fremstu röðum og ber þá helst að nefna Kaspar frá Kommu (Gustssonur) og Kappa frá Kommu (Þristssonur). Kapall sjálfur er svo undan hinum stórglæsilega stóðhesti Álfi frá Selfossi.

Það verður spennandi að sjá hvernig hann Kapall þróast en hann er mjög stór og myndarlegur, með miklar og mjúkar hreyfingar.

Við erum stoltir hluthafar og eigum einn hlut.

Einnig er hægt að fylgjast með Kapal HÉR

 x  

 
 
 Ætt

 M:
 IS1992265890 Kjarnorka frá Kommu
 F:
 IS2002187662 Álfur frá Selfossi
 MF:
 IS1988165960 Mósi frá Uppsölum
 FF:
 IS1986186055 Orri frá Þúfu
 MFF:
 IS1974158602 Ófeigur frá Flugumýri
 FFF:
 IS1982151001 Otur frá Sauðárkróki
 MFM:
 IS1972265960 Ör frá Uppsölum
 FFM:
 IS1983284555 Dama frá Þúfu
 MM:
 IS1981265960 Kolla frá Uppsölum
 FM:
 IS1996287660 Álfadís frá Selfossi
 MMF:
 IS1974158601 Freyr frá Flugumýri
 FMF:
 IS1979125040 Adam frá Meðalfelli
 MMM:
 IS1971265960 Nös frá Uppsölum
 FMM:
 IS1990236512 Grýla frá Stangarholti
 


• Björgvin 8985552 og Guđrún 8219262 • E-mail: breidstadir@internet.is
© 2008 Uppsetning og hönnun Hýsir.is