Þriðja gotið hennar Emmu var 24. júlí 2009, en hún var pöruð við IS07264/03 Mingtime´s Pass The Courvoisier Cisco, AFTUR. 

     Cisco er innfluttur hundur og háættaður, og undan honum hafa komið bæði sænskir og bandarískir meistarar. En þess má geta að Cisco er íslenskur meistari og frábær hundur í alla staði, hann hefur styttri feldgerðina (horsecoat). Cisco kemur frá Brekkukotsræktuninni og er hægt að forvitnast meira um hann með því að smella
hér. 

     Úr þessu goti komu fjórir yndislegir hvolpar, þrír hundar og ein tík. Þrír hvolpar með styttri feldgerðina (brushcoat) og einn með lengri feldgerðina (horsecoat), alveg öfugt við fyrri gotin. Allir hvolparnir voru rauðgulir eða red fawn, þó allir misjafnir og með misjafnlega mikla grímu framan í sér.

     Hér er svo hægt að skoða fleiri myndir úr GOTI 3.

     Hér fyrir neðan má svo sjá hvern og einn hvolp, smá umsögn og hvert þeir fóru.




IS13783/09 Astrid Amazing Zorro

Fyrsti hvolpurinn sem kom í heiminn var hann Zorro, en hann er rauðgulur á litinn og með svarta grímu. Hann hefur lengri feldgerðina og sá eini í þessu goti.

Zorro var klárlega ofurbangsinn og ofurhuginn í þessu goti enda gekk hann undir nafninu Bond, James Bond. Hann hreinlega átti svæðið þegar hann mætti, óhræddur við allt og alltaf í einhverjum könnunarleiðangri. Algjör bangsi, enda loðinn, mjúkur og æðislegt að knúsa hann. Hann var dálítið fyndinn með eitt að ef hann varð þreyttur þá henti hann sér bara niður og sofnaði, gerðist einu sinni í miðri myndatöku þar sem gaurinn átti að sitja en lagðist bara niður og sofnaði.

Eigendur: Sara Rún Markúsardóttir og Aron Hugi Helgason, Vestmannaeyjum.


 x
 
 



IS13784/09 Astrid Amazing Torres

Annar hvolpurinn sem fæddist var hann Torres. Hann hefur styttri feldgerðina og fæddist mun ljósari en hinir hvolparnir. 

Torres var ofsalegt krútt, alltaf lang stærstur, þyngstur og rólegastur og því vinsælasti kúrarinn. Torres er ofsalega fríður og var algjör bjútíbolla sem hvolpur, en hann hefur þessi æðislegu augu sem gjörsamlega bræða mann. Hann var ekki sá hugaðasti og lét systkini sín kanna slóðina áður en hann prófaði sjálfur, en lét engan vaða yfir sig. 



Eigendur: Arney Lind Helgadóttir, Vestmannaeyjum.


 x
 



IS13785/09  Astrid Amazing Lady

Þriðji hvolpurinn sem fæddist var hún Lady okkar, en hún hefur styttri feldgerðina, er rauðgul með grímu.

Lady er klárlega prinsessan í þessu karlaveldi sem hún fæddist í og algjör prímadonna. Hún stendur vel undir nafni enda algjör lady, ofsalega fíngerð og fríð. Lady er algjör kelirófa og ofsalega góð við alla, en vill oft verða feimin við ókunnuga ef hún fær of mikla athygli. Lady er mikill gleðipinni og oft eins og þeytispjald um allt.



Eigendur: Guðrún Astrid Elvarsdóttir og Björgvin Benediktsson, Sauðárkróki.

 x
 
 



IS13786/09  Astrid Amazing Bono

Fjórði og síðasti hvolpurinn sem fæddist í þessu goti var hann Bono, en hann hefur styttri feldgerðina eins og Torres og Lady.

Bono var algjört krumpudýr og krumpaðari hund ef ég aldrei séð, enda gekkst hann undir nafninu Benjamín Button fyrstu daga ævi sinnar. Bono var mikill mömmustrákur og fylgdi mér allt, algjör kelirófa og mikill kúrari. Lét alveg í sér heyra ef hann fékk ekki nóg athygli, sem mömmunni þótti EKKI leiðinlegt !





Eigendur: Þórdís Ósk Rúnarsdóttir, Sauðárkróki.

 

 x
 


 

 

• Björgvin 8985552 og Guđrún 8219262 • E-mail: breidstadir@internet.is
© 2008 Uppsetning og hönnun Hýsir.is