Hjá okkur fæðast í kringum 4-5 folöld ár hvert, en eins og áður hefur komið fram sækjum við ekki í einhverja eina línu frekar en aðra, en reynum að notast eingöngu við 1.verðlauna stóðhesta eða háættaða, efnilega ungfola.
Hrossaræktin er fyrst og fremst til að hafa gaman af enda leggjum við hug og hjörtu í allt sem að henni snýr. 
Hrossaræktin er byggð á fimm 1. verðlauna hryssum, en ein þeirra var þó einungis byggingardæmd þar sem hún slasaðist. En til gamans má sjá myndir af henni hérna, ásamt Hrunasyninum Berg.
|