Kínverska orðið Shar-Pei þýðir á íslensku hákarlaskrápur eða sandpappír. Annað heiti þessa hundakyns er kínverskur vígahundur sem í raun gefur ekki rétta mynd, því þeir eru mjög vingjarnlegir, elskulegir og barngóðir.
Nokkrar getgátur eru um uppruna Shar-Pei hunda meðal annars er talið að um sé að ræða kynblöndu af Mastiff-kyni og norrænu-kyni. Einnig er mögulegt að Shar-Pei hundar séu komnir af hundategundinni Chow-Chow. Shar-Pei kynið er ævaforn tegund hunda og heimildir eru fyrir því að kynið hafi verið til á tímum Han konungsættarinnar í Kína á 2. öld fyrir Krist.
Shar-Pei hundar voru notaðir af lágstéttarfólki til að létta undir heimilisstörfin bæði í smalamennsku og við veiðar. Því miður voru Shar-Pei hundar um skeið notaðir af fátækum kínverskum bændum sem bardagahundar. Stóðu bændurnir þá fyrir veðmáli og vinningshafinn kom með fé í bú sem þótti fremur sjáldgæft á þessum tíma. Líkamlega voru Shar-Pei hundar vel til bardaga fallnir með stinnan feld og miklar fellingar sem kom í veg fyrir að andstæðingurinn næði föstu taki á þeim. Hugarfarslega skorti Shar-Pei hins vegar árasargirni og voru þeir þá oftar en ekki sveltir og dópaðir til að reyna kalla fram vígaeðlið. Þegar Kínverjarnir áttuðu sig á lélegu bardagaeðli Shar-Pei gáfust þeir fljótt upp á að nota þá til hundavíga.
Þegar kommúnistabyltingin braust út í Kína voru hundarnir bannaðir þar og fjölmargir drepnir. Shar-Pei stofninum var næstum útrýmt og voru þeir á tímabili skráðir á lista heimsmetabókar Guiness sem sjaldgæfasti hundur heims. Til mikillar gæfu ver tegundinni þó bjargað á síðustu stundu, þar átti í hlut Matgow Law verslunarmaður frá Hong Kong sem biðlaði til Bandaríkjamanna árið 1973 í tímariti sem hét "Popular Dogs". Hann bað Bandaríkjamenn að bjarga tegundinni frá útrýmingu. Alls voru 12 Shar-Pei hundar innfluttir til Bandaríkjanna. Undan þeim eru nú ALLIR Shar-Pei hundar komnir í Evrópu og Bandaríkjunum.
Stærð: 44-51 cm. mælt frá herðakambi að jörðu
Þyngd: ca. 16-28 kg.
Litir: til eru hinir ýmsu litir, en rauðbrúnn og svartur verða þó að teljast algengastur lita hér á landi.
Feldur: til eru þrjár feldgerðir. Það eru:
* horsecoat: mjög stuttur feldur, alveg snögghærður.
* brushcoat: þá er feldurinn lengri en á horsecoat en samt stuttur.
* bearcoat: þá er feldurinn orðinn lengri en 2.5 cm. Bearcoat Shar-Pei eru ekki viðurkenndir sem sýningahundar og eru frekar sjaldgæfir. 

Útlit: Shar-Pei eru árvakrir, þéttvaxnir meðalstórir hundar, kubbslega vaxnir með stórt höfuð sem samsvarar vaxtarlaginu vel. Hinn stutti hrjúfi feldur og húðfellingarnar sem þekja höfuð og skrokk, lítil eyru og hin flóðhestalega lögun trýnisins ásamt reisulegu hringlaga skotti gefa Shar-Pei hundum einstök sérkenni. Á fullorðnum hundum geta húðfellingarnar takmarkast við höfuð, hnakka og herðakamb.
Skapgerð: Við fyrstu kynni eru Shar-Pei hundar á verði gagnvart ókunnugum og eru ákaflega tryggir og húsbóndahollir ásamt því að þeir standa vörð um fjölskyldu sína.
Hundarnir eru þekktir fyrir skynsemi ásamt miklum persónutöfrum sem unnið hefur þeim hylli hvarvetna.
Shar-Pei eru að eðlisfari vakthundar. Þessu eðli þeirra má ekki rugla saman við árasargirni sem aldrei á að umbera. Þeir eru barngóðir og skemmtilegir fjölskylduhundar.
Framkoma Shar-Pei hunda einkennist af eftirfarandi þáttum, þeir eru tignalegir, greindir, karlmannalegir, árvakrir og skemmtilegur áhyggjusvipur leynir sér heldur ekki á fasi þeirra. Gagnvart ókunnugum eru þeir vandlátir, sjálfstæðir og fáskiptir. Shar-Pei hundar eru rólegir og öruggir með sig og vel meðvitaðir um umhverfi sitt. Kenningin um að "hundurinn sé besti vinur mannsins" á sérstaklega vel við um Shar-Pei hunda og þeir eru miklir mannvinir. Ekki skemmir fyrir að mjög auðvelt er að kenna þessum hundum frá hinum einföldustu siðum upp í flóknustu þrautir.
|