Fyrsta gotið hennar Emmu var 20. apríl 2005, en hún var pöruð við IS07264/03 Mingtime´s Pass The Courvoisier, kallaður Cisco. Cisco er innfluttur hundur og háættaður, og undan honum hafa komið bæði sænskir og bandarískir meistarar. En þess má geta að Cisco er íslenskur meistari og frábær hundur í alla staði, hann hefur styttri feldgerðina (horsecoat). Cisco kemur frá Brekkukotsræktuninni og er hægt að forvitnast meira um hann með því að smella hér. 

     Úr þessu goti komu fjórir yndislegir hvolpar, einn hundur og þrjár tíkur. Þrír hvolpar með lengri feldgerðina (brushcoat) og einn með styttri feldgerðina (horsecoat). Allir hvolparnir voru rauðgulir eða red fawn, þó misjafnir allir og þrír með grímu en þó einn með alveg svarta. 

     Hér er svo hægt að skoða fleiri myndir úr GOTI 1.

     Hér fyrir neðan má svo sjá hvern og einn hvolp, smá umsögn og hvert þeir fóru.



IS08856/05  Astrid Amazing Argos Hannes

Fyrsti hvolpurinn sem kom í heiminn var hann Hannes, en hann hefur lengri feldgerðina og er rauðgulur, með grímu.

Hannes var frekar sjálfstæður hvolpur en mjög rólegur, dálítið lúmsk týpa og svona grallari í sér. Hann var ofsalega góður og blíður, svolítil kelirófa.


Eigendur: Snærún Ösp Guðmundsdóttir, Kópavogi.


 x
 
 Hannes


 


IS08857/05 Astrid Amazing Bessý

Annar hvolpurinn sem fæddist var hún Bessý, en hún hefur styttri feldgerðina eins og pabbi sinn og mun ljósari á litin en hinir hvolparnir. Engu að síður rauðgul en án grímu.

Bessý var með lang mestu fellingarnar og því algjört rassgat fyrir það eitt, en einnig þar sem hún hafði svo lítið hjarta og var lengi rosalega lítil í sér. Bessý var fljót að kalla eftir hjálp með smá væli ef hún treysti sér ekki í eitthvað. Ofsalega róleg og enginn æðubunugangur í þessari skvísu. 


Eigendur: Gylfi Markússon og Christina Bendtsson, Hvolsvelli.


 x
 
Bessý


 


IS08858/05  Astrid Amazing Chlóe - Tirra

Þriðji hvolpurinn sem fæddist var hún Tirra, en hún hefur lengri feldgerðina eins og mamma sín, rauðgul en sú eina sem var með alveg kolsvarta grímu og kolóttar loppur.

Tirra var þvílík rúsína og aðal bangsinn í þessu goti, en hún var mjög hvatvís og mikið fyrir það að leika sér. Tirra var algjör sleikipinni og því alvöru kelirófa.


Eigendur: Signý Kolbeinsdóttir, Reykjavík.

 x
 
 Tirra


 


† IS08855/05 Ms. Brekkukots - Diljá

Fjórði og síðasti hvolpurinn sem fæddist í þessu goti var hún Diljá, en hún hefur lengri feldgerðina eins og Hannes og Tirra, en ólík hinum hvolpunum á þann veginn að hún var rauðari á litinn, kallast mahony en engu að síður rauðgul með grímu.

Diljá var aðal prímadonnan í hópnum og sú eina sem slóst um völdin við hann Hannes. Hún var einnig með annan augnsvip en systkini sín og gat alveg dáleitt mann með fallegu augunum sínum, sem jöðruðu við það að vera rangeygð. :o)

Diljá var algjör perla, sem við fengum að kynnast vel en því miður bar hún svokallað „sjálfsofnæmi“ sem erfitt var að berjast við og lítið um lækningu. Litla skinnið þurfti því að kveðja langt fyrir aldur fram, en hún mun lifa lengi í hjörtum okkar sem fengu þann heiður að kynnast henni.


Eigendur: Helga Sigurrós Valgeirsdóttir, Reykjavík.

 
 x
 
Diljá


 

 

 

 

 

 

 

• Björgvin 8985552 og Guđrún 8219262 • E-mail: breidstadir@internet.is
© 2008 Uppsetning og hönnun Hýsir.is