Annað gotið hennar Emmu var 19. september 2007, en hún var pöruð við IS07264/03 Mingtime´s Pass The Courvoisier Cisco, aftur. Eins og e-h sagði: „ef þú finnur góða uppskrift... AFHVERJU þá að breyta henni?“

     Cisco er innfluttur hundur og háættaður, og undan honum hafa komið bæði sænskir og bandarískir meistarar. En þess má geta að Cisco er íslenskur meistari og frábær hundur í alla staði, hann hefur styttri feldgerðina (horsecoat). Cisco kemur frá Brekkukotsræktuninni og er hægt að forvitnast meira um hann með því að smella
hér. 

     Úr þessu goti komu fjórir yndislegir hvolpar, tveir hundar og tvær tíkur. Þrír hvolpar með lengri feldgerðina (brushcoat) og einn með styttri feldgerðina (horsecoat), en það var eins í fyrra gotinu nema að núna kom horsecoat strákur. Allir hvolparnir voru rauðgulir eða red fawn, þó allir misjafnir og með misjafnlega mikla grímu framan í sér en enginn þó með svarta grímu.

     Hér er svo hægt að skoða fleiri myndir úr GOTI 2.

     Hér fyrir neðan má svo sjá hvern og einn hvolp, smá umsögn og hvert þeir fóru.




IS11574/08 Astrid Amazing Zidane

Fyrsti hvolpurinn sem kom í heiminn var hann Zidane en hann hefur lengri feldgerðina og er rauðgulur, jafnvel örlítið út í mahony.

Zidane var ofurbangsinn í þessu goti, enda um þvílíkt rassgat að ræða og hefði maður getað étið hann, hann var svo sætur og mjúkur.  Zidane var alltaf hugaður og kátur, algjör sleikipinni en að sama skapi ofsalegur kúrari, mjög blíður og góður. 


Eigendur: Svala Sif Sigurgeirsdóttir og Samúel Sigurjón Samúelsson, Ísafirði.


 x
 
 Zidane


 


IS11575/08 Astrid Amazing Diego

Annar hvolpurinn sem fæddist var hann Diego, en hann hefur styttri feldgerðina eins og pabbi sinn, og var mun ljósari en hinir hvolparnir á litinn, líkt og Bessý systir hans úr hinu gotinu. Engu að síður rauðgulur, (red fawn). Diego var alltaf stærstur og þyngstur.

Diego var ofsalega fríður og fallegur hvolpur, ekki sá hugaðasti en gerði þó alla hluti en þurfti bara að hugsa þá út fyrst. Það var rosalega gaman við hann að hann stóð alltaf í miklum flutningum þegar þau fengu að leika lausum hala, þá sótti hann mottur og ýmislegt og flutti það í bælið sitt.  :o)


Eigendur: Íris Gefnardóttir, Akranesi.


 x
 
Diego


 


IS11577/08  Astrid Amazing Mía

Þriðji hvolpurinn sem fæddist var hún Mía okkar, en hún hefur lengri feldgerðina eins og mamma sín, er rauðgul með ljósa grímu.

Mía er fæddur skemmtikraftur, enda er hér á ferðinni mikill karakter og fyndinn persónuleiki. Mía var alltaf frekar frökk og ákveðinn hvolpur, mjööög dugleg að borða og elskar mat. Eitt pínu fyndið við Míu, hún dillaði lengi vel aldrei skottinu eins og hinir hvolparnir þegar verið var að tala við hana, EN þegar það loksins gerðist fór allt rassgatið af stað og gerir enn í dag. :o) 


Eigendur: Guðrún Astrid Elvarsdóttir og Björgvin Benediktsson, Sauðárkróki.

 x
 
 Mía Björgvins.


 


IS11576/08  Astrid Amazing Rúsína

Fjórði og síðasti hvolpurinn sem fæddist í þessu goti var hún Rúsína, en hún hefur lengri feldgerðina eins og systikini sín, Zidane og Mía.

Rúsína var kelirófan í hópnum og algjör sleikipinni, elskaði að láta knúsa sig.  Hún var einnig sú fjörugasta í hópnum og fljót yfirferðar, enda mjög létt á sér. Hún var alltaf kát og hress, enda alltaf að leika sér.



Eigendur: Jón Friðgeir Sigurðsson, Garðabæ.

 
 x
 
Rúsína


 

 

 

 

• Björgvin 8985552 og Guđrún 8219262 • E-mail: breidstadir@internet.is
© 2008 Uppsetning og hönnun Hýsir.is