Björgvin, Monty Roberts hestahvíslarinn og Guđrún      Á bak við hrossaræktina á Breiðstöðum standa Jónhallur Björgvin Benediktsson og Guðrún Astrid Elvarsdóttir. 
      Björgvin er fæddur og uppalinn á Sauðárkróki. Hann hefur alla tíð verið viðloðinn hestamennsku í gegnum föður sinn Benedikt. Aðaláhugasviðið liggur þó mest í ræktun hrossa og útreiðum, auk tamningu og þjálfun. 
     Guðrún hefur á svipaðan hátt stundað hestamennsku frá blautu barnsbeini en faðir hennar átti þá nokkur hross. Áhugi hennar á dýrum hefur verið mjög sterkur alla tíð og fyrsta alvöru hestinn eignaðist hún 10 ára, þegar afi hennar og fjölskylda gáfu henni gæðingshryssuna Zöru frá Syðra Skörðugili, sem þá var folald.
      Guðrún útskrifaðist frá Bændaskólanum á Hólum sem búfræðingur og með FT réttindi. Og hefur hún víða tamið og þjálfað hross, og má þar nefna hjá Sigga Matt, Vakurstaðarhjónunum og Styrmi Árnasyni í Þýskalandi.
      Áhugasvið Guðrúnar liggur mest í hrossarækt, auk tamningu og þjálfun hrossa líkt og hjá Björgvini, en hún hefur þó einnig gaman af keppni.

       Hrossaræktin okkar er ung en hún hófst 1998 þegar Guðrún hélt fyrstu hryssunni sinni undir Keili frá Miðsitju, en ræktunin er byggð að mestu á tveimur afburða merum sem Guðrún eignaðist ung, en það eru hryssurnar Zara frá Syðra Skörðugili og Gloría frá Mýkjunesi. En hrossaræktinni hefur svo verið einkennt við jörðina Breiðstaði. Breiđstađir

      Jörðin Breiðstaðir er staðsett í Skagafirði, í svokölluðum gönguskörðum fyrir ofan bæinn Sauðárkrók. Þar erum við búin að bæta aðstæður síðustu ár fyrir ræktunarhryssurnar okkar og hrossin sem eru í uppeldi, eru þau því nú í góðu atlæti þar allt árið.  Benedikt Agnarsson, bústjóri og faðir Björgvins stundar loðdýrarækt á Breiðstöðum, auk þess er hann með nokkrar ær og smalahundinn Ponna.  
 
     Við búum á Sauðárkróki, nánar tiltekið í Iðutúni 13 ásamt skvísunum (hundunum) okkar Emmu og Míu. Á Sauðárkróki eigum við hesthús ásamt Miðsitjuhjónunum Jóa Vakra og Sollu, en þar eru hross búsins tamin og þjálfuð yfir veturinn. Við leggjum mikinn metnað í að hafa alla aðstöðu fyrir hrossin góða og vonum að það komi fram í hrossunum okkar.

      Okkar markmið í hrossarækt eru fyrst og fremst að rækta geðgóð, fasmikil og fjölhæf hross, fá en góð. En ræktunin okkar samanstendur af fimm frábærum hryssum, þar af fjórum 1.verðlauna hryssum og eru tvær af þeim úr okkar eigin ræktun. Á ræktunarhryssurnar reynum við að notast við 1. verðlauna stóðhesta eða háættaða, efnilega fola. Við sækjum ekki í einhverja eina línu frekar en aðra, heldur látum við hug og hjarta ráða för.
      Emma og Mía (Björgvinsd.) :o)
      En auk þess að rækta hross höfum við ræktað hundategundina Shar Pei, sem er hundategund frá Kína. Eru þetta frábærir fjölskylduhundar, barnselskir, auðvelt að kenna þeim og einn af stærstu kostum þeirra er hvað þeir eru ljúfir og góðir. Hundaræktunin er einkennd við ræktunarnafnið Astrid Amazing og hægt að kynna sér hana og tegundina betur undir linknum Shar Pei hundar.

 

• Björgvin 8985552 og Guđrún 8219262 • E-mail: breidstadir@internet.is
© 2008 Uppsetning og hönnun Hýsir.is