IS1989286629 Gloría frá Mýkjunesi


 
Gloríu keypti Guðrún þegar hún var 15 ára af Árna Jóhannssyni stórtenór. Merin hefur fylgt Guðrúnu í gegnum alla hennar hestamennsku, er og verður alltaf í uppáhaldi. Gloría var ofsalegur orkubolti og alveg sama á hvaða gangtegund hún var og grínuðumst við með það að ,,túrbo-takkinn" væri fastur inni. :o)  Gloría var fyrst og fremst gæðingur, klárhryssa með allar gangtegundir jafn góðar, hágeng og fasmikil hryssa með sérstaklega rúmt afturfótaskref.
Gloría gaf Guðrúnu fyrsta folaldið sem því miður lést af slysförum 2 vetra gamalt. Gloría var fyrsta trippið sem Guðrún tamdi, þær fóru saman í Hólaskóla, fyrsti hesturinn sem Guðrún sýndi í kynbótadómum og má sjá votta fyrir reynsluleysi knapa á einkunnunum sem þó eru ágætar en hryssan átti inni.
Gloría var eintak sem allir hestamenn ættu að fá að kynnast á lífsleiðinni. Gloría var í ræktun hjá okkur og búin að skila okkur afbragðs hrossum og má þar nefna 1. verðlauna hryssuna Ófelíu frá Breiðstöðum og klárhryssuna Venusi frá Breiðstöðum, en  til eru mjög spennandi afkvæmi undan Gloríu sem enn eru í tamningu og uppvexti. Því miður misstum við elsku Gloríu okkar 13. mars 2007, en óskandi er að í afkvæmum hennar megi finna ,,gloríur" ! :o)


 x
 
 

 

 

 

 

 Ætt


 M:
 IS1978258501 Halla frá Vatnsleysu
 F:
 IS1980157520 Riddari frá Syðra Skörðugili
 MF:
 IS1971158481 Sleipnir frá Ásgeirsbrekku
 FF:
 IS1974158602 Ófeigur frá Flugumýri
 MFF:
 IS1968158483 Amor frá Ásgeirsbrekku
 FFF:
 IS1966157001 Kolskeggur frá Flugumýri
 MFM:
 IS1956277420 Irpa frá Kyljuholti
 FFM:
 IS1965257002 Kengála frá Flugumýri
 MM:
 IS1964238950 Harpa frá Búðardal
 FM:
 IS1961235589 Kvika frá Hesti
 MMF:
 IS1947184420 Lýsingur frá Voðmúlastöðum
 FMF:
 IS1941177415 Nökkvi frá Hólmi
 MMM:
 IS19ZZ290417 Mön frá Fjósum
 FMM:
 IS1953257510 Stjarna frá Syðra Skörðugili
 

 

 

 

 

 

 Hæsti dómur

Höfuð
7,0
 
Tölt
8,0
Háls/herðar/bógar
7,5
 
Brokk
8,5
Bak og lend
7,5
 
Skeið
5,0
Samræmi
6,5
 
Stökk
8,5
Fótagerð
9,0
 
Vilji og geðslag
8,0
Réttleiki
7,0
 
Fegurð í reið
8,0
Hófar
8,0
 
Fet
8,5
Prúðleiki
7,5
 
 
 
 
 
 
 
 
Sköpulag:
7,54
 
Kostir:
7,66
Aðaleinkunn:
7,61
 
 
 
 
 
 
 Hægt tölt
8,0
 
 
 
 Hægt stökk
 

 
 
 
 
 
 
 

 

 

 









Afkvæmi

 Afkvæmi
 
 Faðir
 
 
 
 IS2006157297 - Markan frá Breiðstöðum    IS1995135993 - Hróður frá Refstöðum
 IS2005157297 - Alvar frá Breiðstöðum
 
 IS1998184878 - Zorro frá Hvolsvelli
 IS2004157297 - Glymur frá Breiðstöðum
 
 IS1998184878 - Zorro frá Hvolsvelli
 IS2003257297 - Aría frá Breiðstöðum
 
 IS2002257297 - Ófelía frá Breiðstöðum
 
 IS1998184878 - Zorro frá Hvolsvelli
 IS2000257297 - Venus frá Breiðstöðum
 
 IS1989158501 - Glampi frá Vatnsleysu
 IS1999157297 - Atlas frá Breiðstöðum
 
 IS1982151001 - Otur frá Sauðárkróki
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 

 
 
 
• Björgvin 8985552 og Guđrún 8219262 • E-mail: breidstadir@internet.is
© 2008 Uppsetning og hönnun Hýsir.is