Það er lítil reynsla komin á stóðhestana okkar. Við getum því einungis talað um stóðhestsefni eins og staðan er í dag, en við teljum okkur vera með tvo slíka og aðra efnilega á leiðinni.
Við komum til með að halda þeim hestum gröðum sem við teljum álitlega hverju sinni, enda eru kröfurnar okkar miklar en raunsæjar til þeirra hesta sem rækta á upp sem stóðhestsefni. Við leggjum mikið uppúr góðu geðslagi, myndarskap og útgeislun, auk þess teljum við það mikinn kost að góðar og sterkar ættir séu að bak við okkar stóðhestsefni.

 |