Við höfum ávallt hross til sölu en þar sem um er að ræða litla ræktun, er kannski frekar um að ræða fá, góð eða efnileg hross fremur en mikið úrval. Engu að síður leggjum við metnað í þetta eins og allt annað er snýr að hrossaræktinni.
Til að auðvelda leitina höfum við skipt söluhrossunum niður í flokka, eftir kyni og aldri. Undir stóðhestum má að sjálfsögðu finna stóðhesta og þá væntanlega stóðhestsefni að okkar mati. Undir hryssum má finna hryssur á öllum aldri, þ.e.a.s. frá veturgömlum og uppúr, ótamdar, tamdar og sýndar hryssur. Undir geldingum má finna geldinga á öllum aldri, efnilega geldinga, fjölskyldu hesta jafnt sem gæðinga. Og að lokum er flokkur fyrir folöld sem eru til sölu, en þar verða bæði hest- og merfolöld sett inn sem til sölu eru hverju sinni.
Hér má sjá þrjár frábærar hryssur úr okkar ræktun.

|